Áfram

Skilmálar

Notkunarskilmálar

Þessi vefsíða er í eigu og rekin af Hrafnhildi Sigurðardóttur ehf, kt. 540695-2109, Engjateigi 5, 105 Reykjavik.

Með því að nota vefverslunina hjahrafnhildi.is samþykkir þú eftirfarandi viðskiptaskilmála.

Vinsamlegast lestu viðskiptaskilmálana vandlega þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar.

Ekki hika við að hafa samband við verslunina á netfangið vefverslun@hjahrafnhildi.is ef þú hefur einhverjar spurningar.

Viðskiptaskilmálar

Kaupskilmálar

  • Hjá Hrafnhildi tekur einungis við pöntunum sem gerðar eru í gegnum vefverslunina.
  • Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu
  • Eftir að pöntun er gerð í vefverslun og staðfesting á greiðslu hefur borist sendir hjá Hrafnhildi kaupanda staðfestingarpóst á netfangið sem kaupandi gaf upp við skráningu og er þá kominn á bindandi samningur um kaup. Við staðfestingu pöntunar á vefverslun skuldbinda viðskiptavinir sig til þess að samþykkja notkunarskilmála hjá Hrafnhildi. Pantanir sem berast hjá Hrafnhildi yfir helgi eru staðfestar næsta virka dag.

Verð

  • Verð á vefsíðunni er gefið upp í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK). Allt verð í netverslun er birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
  • Mikilvægt er að kaupandi átti sig á því að verð í netverslun er ekki alltaf það sama og í versluninni sjálfri. Einnig áskilur hjá Hrafnhildi sér rétt til að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
  • Hjá Hrafnhildi áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu vörunnar ef t.d. skýr verðvilla birtist í vefsíðunni, en þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða. Í slíkum tilvikum ber hjá Hrafnhildi ábyrgð á því að tilkynna strax um villuna og leiðrétta verð.

Nákvæmni upplýsinga

  • Allar upplýsingar sem birtar eru í vefverslun hjá Hrafnhildi eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða uppfærslutafir. Vefverslunin reynir að sjá til þess að réttar vörumyndir og upplýsingar séu gefnar upp í vefversluninni en mikilvægt er að hafa í huga að það getur verið um minniháttar litamun að ræða.

Afslættir- og kynningarkóðar

  • Afsláttar og kynningarkóðar gildi einungis einu sinni. Eftir að kóðinn hefur verið notaður er hann óvirkur. Ekki er hægt að bæta við afslætti eftir að pöntun hefur verið staðfest. Vegna þessa er mikilvægt að kaupandi tryggi að allar uppgefnar upplýsingar séu rétt skráðar áður en pöntun er staðfest.
  • Hjá Hrafnhildi getur afturkallað afslátt, kynningarverð, kynningarkóða eða tilboð hvenær sem er.

Vörur til einkanota

  • Allar vörur í vefverslun hjá Hrafnhildi eru einungis ætlaðar til persónulegra nota. Það er því með öllu óheimilt að endurselja vörur af vefverslun hjá Hrafnildi án leyfis. Hjá Hrafnhildi áskilur sér rétt til þess að hætta við afhendingu á vörum eða stöðva pöntun ef verslunin telur að kaupandi fylgi ekki þessum skilmálum.

Greiðsla

  • Netverslun hjá Hrafnhildi samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir á vefsíðu: kreditkort (VISA, MasterCard) eða staðgreitt með debetkorti (VISA Electron, Maestro) og millifærslur. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu Valitor á Íslandi.
  • Millifærslur skulu leggjast inn á reikning: 526-26-224, kt. 5406952109 og kvittun send á netfangið vefverslun@hjahrafnhildi.is. Ef að millifærsla hefur ekki borist hjá hrafnhildi innan við sólarhring frá því að pöntun var staðfest er gert ráð fyrir því að kaupandi hafi hætt við pöntun.
  • Kaupanda er sendur staðfestingarpóstur eftir að hjá Hrafnhildi hefur borist staðfesting á greiðslu og er þá kominn á bindandi samningur um kaup.

Sending & afgreiðsla

Þegar kaupandi verslar í vefverslun hjá Hrafnhildi fyrir meira en 15.000 kr. er boðið uppá fría heimsendingu! Einnig býður verslunin uppá gjafainnpökkun.

  • Ef þú velur að sækja í verslun sendum við þér tilkynningu um leið og varan er tilbúin til afhendingar, oftast samdægurs eða næsta virka dag. 
  • Við afhendingu þarf að sýna fram á staðfestingu á kaupum.

  • Pósturinn sækir sendingar í verslunina alla virka daga og leitast hjá Hrafnhildi við að senda pantanir næsta virka dag eftir að pöntun hefur verið staðfest.

  • Afhendingartími er að jafnaði 1-3 virkir dagar.
    • Ef pöntun berst eftir klukkan 14 er hún sótt næsta virka dag.
    • Pósturinn sendir þér rafræna tilkynningu (SMS) þegar sendingin er lögð af stað til þín.
    • Á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri eru pakkar keyrðir út til einstaklinga alla virka daga milli 17-22.
    • Annars staðar á landinu þar sem heimkeysla er í boði er mismunandi hvaða tímasetningar eiga við. 
    • Takist ekki að afhenda sendinguna í heimkeyrslu er hægt að nálgast hana á næsta pósthúsi. 
    • Mögulegt er að fá vörur sendar á annað heimilisfang en kaupandans. Um afhendingu vörunnar gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins.  
    • Aðeins er hægt að fá vörur sendar innanlands.
    • Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.

    Ef vörur hafa ekki borist kaupanda innan gefins tímaramma er viðskiptavinum bent á að hafa samband við hjá Hrafnhildi á netfangið vefverslun@hjahrafnhildi.is

    Sendingargjald:

    • Ef verslað fyrir meira en 15.000kr er sendingin gjaldfrjáls
    • sótt í verslun – 0kr.
    • heim að dyrum – 1480kr.
    • í pósthús – 980kr.
    • í póstbox – 780kr.

    Skilaréttur

    • Áður en pöntun fer í póst getur kaupandi hætt við með því að senda tölvupóst á netfangið: vefverslun@hjahrafnhildi.is.
    • Skila skal vöru ásamt kvittuninni sem fylgdi pöntuninni til verslunarinnar innan við 14 daga frá því að kaupandi fékk vöruna í hendurnar.
    • Skilafrestur gildir ekki um útsöluvörur ef liðnir eru meira en 14 dagar frá kaupunum er því miður ekki hægt að skila. En til þess að getað skilað vörunni þarf hún að vera:
    1. í fullkomnu lagi
    2. ónotuð
    3. bæði með framleiðslu-, og verðmiða.
    • Ef kaupandi vill skila vörunni býður hjá Hrafnhildi uppá fría endursendingu innan ramma ofangreinds skilafrests!
    • Endursendingarmiði og nákvæmar leiðbeiningar fylgja öllum pöntunum á vefverslun.
    • Hjá Hrafnhildi mælir eindregið með því að kaupandi geymi kvittun fyrir sendingunni ásamt sendingarnúmeri þar til kaupanda hefur verið endurgreitt.

    • Einnig er hægt er að skila vörum í verslun okkar, hjá Hrafnhildi, að Engateigi 5, 105 Reykjavík.
    • Ekki er hægt að skila nærfatnaði. 

    Útsölu- og tilboðsvörur

    • Ekki er hægt að skila útsöluvöru, en hægt er að skipta í aðra útsöluvöru á meðan útsölu stendur. Verðið á vörunni miðast við daginn sem henni er skipt. 

    Gjafir

    • Ef vara er merkt sem gjöf og send beint til viðkomandi sem skilar vörunni fær viðkomandi inneignarnótu að andvirði vörunnar á þeim tíma sem henni er skilað.

    Galli

    • Ef kaupandi kaupir gallaða vöru skal senda tilkynningu með mynd um leið og galli kemur fram í vöru á netfangið: vefverslun@hjahrafnhildi.is.
    • Einnig er hægt að koma með vöruna í verslunina til okkar þar sem boðið er uppá viðgerð, hægt að fá endurgreitt, skipta í aðra vöru eða fá inneignarnótu.
    • Það fer eftir því hvernig galla er um að ræða hvaða aðgerð kaupandanum er boðið uppá.
    • Um rétt kaupenda vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

    Endurgreiðsla

    • Endurgreiðsla fer fram eftir að hjá Hrafnhildi hefur móttekið vöruna frá kaupanda. Þegar vara hefur verið móttekin og hún verið skoðuð er kaupanda sendur tölvupóstur þar sem viðkomanda er tilkynnt að varan sé móttekin.
    • Ef að endurgreiðslan er samþykkt fer hún fram eins og upprunalega var greitt fyrir vöruna, endurgreitt inná kort eða millifært inná kaupanda. Endurgreiðslan skal berast kaupanda innan nokkurra daga.
    • Ef kaupandi hefur ekki fengið endurgreiðslu innan 10 daga frá staðfestingarpósti um samþykki endurgreiðslu frá skal viðkomandi hafa samband við vefverslunina á netfangið: vefverslun@hjahrafnhildi.is.

    Persónuupplýsingar 

    • Þegar keyptar eru vörur í vefverslun hjá Hrafnhildi þarf kaupandi að gefa upp persónuupplýsingar á borð við kreditkortaupplýsingar, nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang.
    • Með því að skrá sig í vildarklúbb og kaupa vöru í vefverslun hjá Hrafnhildi samþykkir viðkomandi söfnun á slíkum persónuupplýsingum.
    • Ef viðkomandi skráir sig á póstlista hjá Hrafnhildi fer netfang viðkomanda á póstlista. Viðkomandi getur alltaf skráð sig af póstlista hjá Hrafnhildi.
    • Allar persónuupplýsingar sem er safnað inná vefverslun hjá Hrafnhildi er farið með af nákvæmni, varúð og sem trúnaðarmál. Upplýsingar gefnar upp að kaupanda verða ekki seldar né afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. 
    • Með því að nota vefverslun hjá Hrafnhildi veitir viðkomandi samþykki sitt og viðurkennir vinnslu og skrá hjá Hrafnhildi á persónuupplýsingum sínum.

     

    Lög og varnarþing: Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.

    Öryggisskilmálar: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000).