Áfram

CARGO PANTS

Sumarbuxurnar í ár, Cheryl Cargo Reunion Pant & Abbey Paper Cargo Pant. Ekta við flottan stuttermabol, eins og Yara Anniversary Tee, og fallega strigaskó. Fullkomið í bæði partíið og útileguna 🤩

Gaman að segja frá því að bæði Cheryl Cargo Reunion Pant & Yara Anniversary Tee eru partur af 10 ára afmælislínu Mos Mosh 🎉 Þessi flotti danski framleiðandi sem þið þekkið svo vel lagði mikið upp úr því að hanna bæði buxurnar og bolina í flottustu sumarlitum 2020 🌈 

Buxurnar eru einstaklega þægilegar og flottar í sniðinu, hægt að hafa þær bæði neðarlega á mjöðmunum eða toga þær hærra upp svo það er hægt að nota þær við hin ýmsu tilefni 👏🏻 Smáatriði eins og skraut á rassvösum og fallegir vasar framan á læri gera buxurnar töffaralegar við t.d. flottar peysur eða stuttermaboli 😍 Einmitt fallega stuttermaboli eins og Yara Anniversary Tee sem eru hannaðir af mikilli ástríðu, úr einstaklega mjúkum bómul og með fallegu skrauti sem glitrar að framan 

Það eru engar vörur sem passa við gefin leitarorð

Skoða allar vörur